





Seyðisfjörður er mekka
menningar, sögu og gestrisni á Austurlandi.
Seyðisfjörður hlykkjast langur og mjór á milli hárra fjalla Austfjarða. Innst við minni fjarðarins, undir skjóli fjallanna Bjólfs (1085m) og Strandatinds (1010m), lúrir kaupstaður fjarðarins. Seyðisfjarðarkaupstaður er rómaður fyrir afslappað andrúmsloft, úrval menningarviðburða, fjölbreytt samfélag og einstaka náttúrufegurð sem býður upp á ótakmarkaða útivistarmöguleika.
Miðbærinn skartar litskrúðugum timburhúsum sem eiga fáa sína líka hér á landi, enda Seyðisfjörður þekktur fyrir einstaka þyrpingu norskra húsa frá aldamótunum 1900.
Þar má finna ýmsar verslanir, upplifa einstaka matarupplifun og drekka í sig bóhem anda Seyðisfjarðar.
Þrátt fyrir að á Seyðisfirði séu aðeins um 300 hús, er ekkert mál að finna gistingu. Gestrisni Seyðfirðinga er rómuð og má glöggt sjá það í fjölbreyttu úrvali gistimöguleika innan fjarðarins.
Á Seyðisfirði finnur þú hótel, gistiheimili, farfuglaheimi og tjaldsvæði.
Taktu flugið og skoðaðu Múlaþing og Fljótsdalshrepp úr lofti, skipulegðu gönguferðina og uppgötvaðu nýja áfangastaði.
Lestu meira