Viðburðir

Filed under: — logi @ 12:46 am

  • LungA- LungA er alþjóðleg, margverðlaunuð listahátíð sem samanstendur af listasmiðjum og fjölbreyttum viðburðum fyrir ungt fólk á aldrinum 16 – 25
    ára í eina viku um miðjan júlí ár hvert. Frekari upplýsingar er að finna á www.lunga.is
  • Sumartónleikaröðin Bláa kirkjan – Atvinnutónlistarmenn koma fram á
    miðvikudagskvöldum í Seyðisfjarðarkirkju. Haldin árlega í júlí og ágúst. Sjá nánar á www.bluechurch.is
  • Á árlegri Smiðjuhátíð Tækniminjasafnsins er lögð áhersla á þjóðlegt hand- og listverk í bland við Norsk/Íslenskan mat og tónlist frá 1800 til dagsins í dag.
    Umgjörðin er safnasvæðið sem er nánast upprunalegt frá því um 1900 í bland við kynningar, sýningar, smiðjur og bragð góðan (jafnvel framandi) hversdags mat, tónlistaruppákomur og dans. Frekari upplýsingar á www.tekmus.is
  • Karlinn í tunglinu – menningardagur barna.< Listasmiðja fyrir börn, frítt inn.
  • Hverfahátíð, dans, leikir, grill og skemmtun fyrir alla fjölskylduna. Grannar og
    vinir hittast í þremur hverfum bæjarins. Grill og æfingar fyrir keppni kvöldsins á milli hverfa fer fram í hverfunum sem hvert um sig er skreytt með einkennislit. Brenna og hittingur í miðbænum.
  • Haustroði – markaðs- og uppskeruhátíð. Handverk, kompudót, tónlist, bíó, ball, skoðunarferð, matur, fatnaður, bækur og uppskera haustsins er meðal þess sem á boðstólum er þennan fyrsta laugardag októbermánaðar ár hvert.

    Árlegir viðburðir, dagsetningar 2011 – 2015

    2011 2012 2013 2014 2015
    LungA 10.-17. júlí 15.-22. júlí 14.-21. júlí 13.-20. júlí 12.-19. júlí
    Karlinn í tunglinu 11. júní 16. júní 15. júní 14. júní 13. júní
    Smiðjuhátíð 22.-24. júlí 27.-29. júlí 26.-28. júlí 25.-27. júlí 24.-26. júlí
    Hverfahátíð 13. ágúst 18. ágúst 17. ágúst 16. ágúst 15. ágúst
    Haustroði 1. október 6. október 5. október 4. október 3. október
  • Sýningar í Skaftfelli eru árið um kring. Sjá nánar á www.skaftfell.is
  • Jazz hátíð Egilsstaða á Austurlandi er haldin árlega á Seyðisfirði, Egilsstöðum og í
    Fjarðabyggð seinnipart júnímánaðar.Upplýsingar á www.jea.is