Fjallið Bjólfur og snjóflóðavarnargarðar Seyðisfjarðar
Vegur opinn frá júní – September
Ekið er eftir sumarvegi frá Fjarðarheiði sem er opinn frá júní fram á haust eða þar til snjóa fer ár hvert. Ekið er upp að snjóflóðavarnargörðum sem eru staðsettir í rúmlega 600 metra hæð yfir sjávarmáli. Stórfengleg mannvirki að skoða og mikilfenglegt útsýni yfir Seyðisfjörð og bæinn. Hægt er að aka þangað á rútu og á flestum venjulegum bílum yfir sumartímann. Einstök upplifun fyrir þá sem ekki geta gengið á fjöll, segja má að þetta sé sannkölluð “safari” ferð. Á Bjólfi eru kjöraðstæður fyrir Svifvængi. Það tekur um 15-20 mínútur að aka frá afleggjaranum á Fjarðarheiði upp að snjóflóðavarnargörðum.
til baka

English
Íslenska 