Opið frá 1. maí til 30. september árið um kring.
Tjaldsvæðið á Seyðisfirði er gróið og rómað fyrir góða þjónustu og hlýlegt umhverfi. á svæðinu er þjónustuhús með aðstöðu fyrir gesti. Eldunaraðstaða og seturstofa er í þjónustuhúsinu. Á tjaldsvæðinu eru sturtur, salerni, þvottavél, þurrkari, borðsalur, eldunaraðstaða inni , útigrill og aðstaða fyrir húsbíla, þar með talið rafmagn og hreinsiaðstaða fyrir húsbíla-wc. Tjaldsvæðið er hólfað niður með hávöxnu kjarri og í næsta nágrenni er sjoppa, matvöruverslun, sundlaug, matsölustaðir, íþróttamiðstöð, sauna og heitir pottar.
Á Seyðisfirði syngja fossarnir þig í svefn.
Styttri og lengri gönguleiðir, bryggjuveiði og fjöruferð er ánægjuleg afþreying og kostar ekkert annað en úthaldið.
Tjaldsvæði Seyðisfjarðar er aðili að Útilegukortinu, finna má upplýsingar um það á www.utilegukortid.is Á vef útilegukorsins eru ýmsar gagnlegar upplýsingar.
Tjaldsvæðið er staðsett við Ránargötu í hjarta bæjarins. Upplýsingar í síma 472-1521/861-7789
Verðskrá 2013:
Fullorðnir kr. 1.100
Elli- og örorkulífeyrisþegar kr. 650
14 ára og yngri frítt.
Sturta kr. 100 / 1,5 mín
Þvottavél kr. 350
Þurrkari kr. 350
Rafmagn kr. 650
til baka

English
Íslenska 

