
Nætur ferð á sjókajak með Hlyni er lýst sem ójarðneskri upplifun (unearthly experience) í hinni heimskunnu ferðahandbók Lonely Planet. (Lonely Planet 2010 page 264). Upplýsingar má finna á www.iceland-tour.com
Vinsælt er að kafa niður að flaki olíuskipsins El Grillo sem sökkt var í Seyðisfirði í seinni
heimsstyrjöldinni, sjá má upplýsingar um skipulagðar ferðir fyrir kafara á www.dive.is
Aðstæður í fjallinu Bjólfi þykja einstakar til svifdrekaflugs. Jeppavegur er upp í um 640 metra
hæð þar sem eru snjóflóðavarnargarðar, vegurinn er opinn frá júní þar til snjóa fer að nýju.
Sjóstangaveiðibátur er starfræktur árið um kring. Hægt er að fara með sjö manns í einu
en fjórir stangir eru um borð svo skiptast verður á ef svo ber undir. Þaulreyndur sjómaður
sem þekkir fjörðinn betur en margur annar leiðsegir í ferðinni. Um 99- 100% líkur eru
á veiði. Frekari upplýsingar er að fá í síma 861 7789 eða með því að senda tölvupóst á
ferdamenning@sfk.is


English
Íslenska 
