Kaffi Lára

Kaffi Lára bar , Norðurgötu 3, Seyðisfirði.  Sími 472 1703

Kaffi Lára er vafalaust eini barinn á Austurandi sem selur eigin framleiðslu, öl sem nefnist El Grillo eftir Bresku olíubirgðaskipi sem sökkt var í firðinum í seinni heimsstyrjöldinni. Á flöskunum er að finna sögu skipsins. Kaffi Lára er til húsa í einu af þeim einstöku aldamótahúsum er prýða Seyðisfjörð. Þar er notalegt að setjast niður, horfa á leik, hlusta á trúbador, hitta bæjarbúa eða bara spjalla við vertinn sjálfann Eyþór Þórisson sem er einstakur karakter. Oft nefndur El grillo karlinn. Barinn er opinn allt árið um kring.


til baka