Gistiheimilið Norðursíld

Gistiheimilið Norðursíld er staðsett utarlega norðanmegin Seyðisfjarðar. Boðið er upp á  gistingu í fyrrum verbúðum frysti- og síldarsöltunarstövarinnar Norðursíld. Þar sem andblær liðinna tíma, rómantík og náttúrufegurð kallast á er yndislegt að dvelja. Hægt er að dorga eftir fiski af bryggjunni í kvöldsólinni og skemmtilegir göngumöguleikar eru í nágrenninu. Gistihúsið er búið 7 tveggja manna herbergjum, með sér baði. Hægt er að bæta við aukadýnum ef óskað er.
Bókanir og upplýsingar í síma 858 9080 eða nordursild@simnet.is


til baka