Menningargöngutúr með heimamanni

Starfrækt árið um kring

Tímalengd: 2,5 klst.

Spyrjist fyrir um í Upplýsingamiðstöðinni eða hringið í síma 472 1551

Netfang: ferdamenning@sfk.is

Lágmark fimm manns

Ferðin hefst við Ferjuhús (Upplýsingamiðstöð) eða eftir samkomulagi.

Seyðisfjörður er af mörgum talinn einn fegursti bær á Íslandi, ekki einungis fyrir stórfenglega náttúru heldur einnig  vegna þess að bæinn prýðir einstakt safn timburbygginga frá aldamótunum 1900 sem sumar hverjar hafa fengið endurnýjun lífdaga. Saga bæjarins er litrík og áhugaverð. Það er því gleðilegt að kynna til sögunnar menningargöngutúr um bæinn undir leiðsögn heimamanns. Rölt er um gamla bæinn,  litið við á handverksmarkaði, í Skaftfell, miðstöð myndlistar, í Tækniminjasafn Austurlands og í kirkjuna svo eitthvað sé nefnt.


til baka