Fossastígur

Filed under: Gönguleiðir & náttúra — oli @ 11:35 am

Fjarðará og Fjarðarsels virkjun/safn
2,5 og 4 klst. / 6 – 10 km.
Aðgengilegt frá Júní fram eftir hausti.

Fjarðará River & Fjarðarsel Museum
Duration: 2,5 and 4 hours / 6 – 10 km.
Period: June – September

Meira...

Fjallkonustígur

Filed under: Gönguleiðir & náttúra — oli @ 1:40 pm

Vestdalur og Vestdalseyri
3,5 klst / 6 km
Aðgengilegt frá júní og frameftir hausti.

Vestdalseyri / Vestdalur valley
Duration: 3,5 hours / 6 km
Period: June – September


Meira...

Brimnes

Filed under: Gönguleiðir & náttúra — oli @ 1:20 pm

10 km akstur frá miðbænum út að bóndabænum Selsstöðum
Þaðan er gengið 5,5 km eftir gömlum jeppaslóða.

A 10 km drive from center of town to Selsstaðir farm
A walk on an old 4 wd track of 5,5 km is taken from there

Meira...

Þórarinsstaðir – Kirkja

Filed under: Gönguleiðir & náttúra — oli @ 1:19 pm

7 Tinda gangan

Filed under: Gönguleiðir & náttúra — oli @ 12:06 pm

Með því að klífa sjö fjallatinda við Seyðisfjörð, flesta vel yfir 1000 m, gefst fólki kostur á að gerast „Fjallagarpar Seyðisfjarðar“

By climbing seven of the peaks surrounding the fjord of Seyðisfjörður, one can become a „Seyðisfjörður Mountain Viking

Meira...

Austdalur – Skálanes – Dalatangi

Filed under: Gönguleiðir & náttúra,Hiking & nature — oli @ 12:04 pm

Austdalur – Skálanes 1,5 klst, 4,5 km

Létt og skemmtileg ganga á láglendi frá bílastæði við Austdalsá að Skálanesi, en þar er ferðaþjónusta á sumrin. Ganga má svo áfram að náttúruperlunni Skálanesbjargi. Mikið fuglalíf er á Skálanesi m.a. æðavarp. Sýnið því aðgát og fylgið merktum stígum. Jeppaslóð er úrAustdal að Skálanesi.

Skálanes – Dalatangi (Skollaskarð) 3-4 klst, 8,5 km

Brött leið er frá Skálanesi upp með bjargbrúninni í Skollaskarð (600), einnig er bratt fyrsta spölinn úr skarðinu niður í Afréttardal. Leiðin liggur yfir Dalaafrétt um Hallandann að Dalatanga. Villugjarnt í þoku.

Seyðisfjörður – Loðmundarfjörður (Hjálmárdalsheiði)

Filed under: Gönguleiðir & náttúra — oli @ 11:58 am

Selstaðir – Loðmundarfjörður 5-6 klst 12km

Gangan hefst skammt frá eyðivýlinu Kolsstöðum um Hjálmárdalsheiði (556m) sem áður var aðalleiðin milli fjarðanna. Bratt er upp á brún heiðarinnar einkum efstu brekkurnar. Vaða eða stikla þarf tvær óbrúaðar ár, Kolsstaðaá og Hjálmá ofarlega í Hjálmárdal, en brú er á Fjarðará í Loðmundarfirði, innan við Sævarenda. Víða eru vörður á leiðinni og gestabók er í einni þeirra á háheiðinni. Á Sævarenda er æðavarp. Sýnið því tillitssemi og fylgið merkta stígnum á varptíma.

Neðri Stafur – Efri Botnar

Filed under: Gönguleiðir & náttúra — oli @ 11:53 am

Vestdalur – Stafdalur

Filed under: Gönguleiðir & náttúra — oli @ 11:51 am

Fjallið Bjólfur og Snjóflóðavarnargarðar Seyðisfjarðar

Filed under: Afþreying,Gönguleiðir & náttúra — oli @ 11:47 am

fallegt útsýni, Bjólfur, Snjóflóðavarnargaraðar, Seyðisfjörður, Austurland

Fjallið Bjólfur og snjóflóðavarnargarðar Seyðisfjarðar

Vegur opinn frá júní – September

Ekið er eftir sumarvegi frá Fjarðarheiði sem er opinn frá júní fram á haust eða þar til snjóa fer ár hvert. Ekið er upp að snjóflóðavarnargörðum sem eru staðsettir í rúmlega 600 metra hæð yfir sjávarmáli. Stórfengleg mannvirki að skoða og mikilfenglegt útsýni yfir Seyðisfjörð og bæinn. Hægt er að aka þangað á rútu og á flestum venjulegum bílum yfir sumartímann.  Einstök upplifun fyrir þá sem ekki geta gengið á fjöll, segja má að þetta sé sannkölluð “safari” ferð. Á Bjólfi eru kjöraðstæður fyrir Svifvængi. Það tekur um 15-20 mínútur að aka frá afleggjaranum á Fjarðarheiði upp að snjóflóðavarnargörðum.

Dvergasteinn

Filed under: Afþreying,Gönguleiðir & náttúra — oli @ 11:42 am

Easy accessibility

Meira...

Vestdalur & Vestdalseyri

Filed under: Gönguleiðir & náttúra — logi @ 11:47 pm

menningarminjar, náttúruminjaskrá, Seyðisfjörður, gamall bær, rústir

Eru á náttúruminjaskrá fyrir sérstæðan gróður og menningaminjar. Á svæðinu má finna minjar um forna byggð en á Vestalseyri stóð þorp með um 300 íbúa og þar var ein helsta út- og innflutnings höfn fyrir Austurland um 1900. síðasti íbúinn flutti af Vestdalseyrinni í kringum 1960. Frá Vestdalseyri liggur ein vinsælasta gönguleiðin í Seyðisfirði yfir til Héraðs. Gönguleiðin liggur framhjá mörgum fallegum fossum Vestdalsár og víða má sjá gamlar veghleðslur. Í Vestdal fundust merkar fornminjar árið 2006, hægt er að ganga að skútanum þar sem fundust leyfar af ungri konu, um 400 perlur og nælur sem hafa verið rannsakaðar og reyndust vera frá því um 940.