Skíðasvæðið í Stafdal

Filed under: Afþreying — oli @ 2:03 pm

Starfrækt desember til maí

Skíðasvæðið er staðsett í Stafdal sem liggur á milli Efri-stafs og Neðri-stafs í Fjarðarheiði, aðeins 10 mín. akstur frá Seyðisfirði og 15. mín. akstur  frá Egilsstöðum.

Á skíðasvæðinu í er 1 km löng diskalyfta þar sem skíðabrekkur eru við allra hæfi, jafnt fyrir lengra komna sem styttra. Barnalyfta er einnig á svæðinu og svæðið er flóðlýst. Hægt er að kaupa léttar veitingar (kakó ,vöfflur ofl) um helgar í skíðaskálanum. Auk  þess að vera eitt af betri svigskíða- og bretta svæðum á landinu eru möguleikarnir endalausir í Stafdal. Frábær aðstaða er fyrir göngu-skíðafólk í Stafdal og á Fjarðarheiði, einnig er frábær aðstaða fyrir snjósleða í Stafdal. Greiðfært er þaðan út á hinn stórfenglega austfirska fjallgarð, yfir í næstu firði og t.d. út að Dyrfjöllum svo dæmi séu tekin.  Opið daglega ef nægur er snjór og veður leyfir.  Símsvarinn í Stafdal er 878 1160 og síminn er 472 1160.

Íþróttamiðstöð

Filed under: Afþreying — oli @ 2:02 pm

 

Starfrækt árið um kring

Líkamsræktarsalur, sána, heitur pottur og vel búinn íþróttasalur. Sími 472 1501

Sundhöll Seyðisfjarðar

Filed under: Afþreying — oli @ 2:01 pm

 

Starfrækt árið um kring

Notaleg innilaug, með heitum pottum og sána. Hægt er að bóka sértíma fyrir hópa, Sími 472 1414

Hagavöllur – golf

Filed under: Afþreying — oli @ 2:01 pm

 

9 holu golf völlur

Starfræktur yfir sumarið og þegar aðstæður leyfa á öðrum tíma

Rétt við Fjarðarsel er golfvöllurinn Hagavöllur, mikil uppbygging hefur átt sér stað síðustu ár og er nú rekin þar níu holu völlur og golfskáli. Hægt er að leigja sett.

Menningargöngutúr með heimamanni

Filed under: Afþreying — oli @ 1:32 pm

Starfrækt árið um kring

Tímalengd: 2,5 klst.

Spyrjist fyrir um í Upplýsingamiðstöðinni eða hringið í síma 472 1551

Netfang: ferdamenning@sfk.is

Lágmark fimm manns

Ferðin hefst við Ferjuhús (Upplýsingamiðstöð) eða eftir samkomulagi.

Seyðisfjörður er af mörgum talinn einn fegursti bær á Íslandi, ekki einungis fyrir stórfenglega náttúru heldur einnig  vegna þess að bæinn prýðir einstakt safn timburbygginga frá aldamótunum 1900 sem sumar hverjar hafa fengið endurnýjun lífdaga. Saga bæjarins er litrík og áhugaverð. Það er því gleðilegt að kynna til sögunnar menningargöngutúr um bæinn undir leiðsögn heimamanns. Rölt er um gamla bæinn,  litið við á handverksmarkaði, í Skaftfell, miðstöð myndlistar, í Tækniminjasafn Austurlands og í kirkjuna svo eitthvað sé nefnt.

Fjallið Bjólfur og Snjóflóðavarnargarðar Seyðisfjarðar

Filed under: Afþreying,Gönguleiðir & náttúra — oli @ 11:47 am

fallegt útsýni, Bjólfur, Snjóflóðavarnargaraðar, Seyðisfjörður, Austurland

Fjallið Bjólfur og snjóflóðavarnargarðar Seyðisfjarðar

Vegur opinn frá júní – September

Ekið er eftir sumarvegi frá Fjarðarheiði sem er opinn frá júní fram á haust eða þar til snjóa fer ár hvert. Ekið er upp að snjóflóðavarnargörðum sem eru staðsettir í rúmlega 600 metra hæð yfir sjávarmáli. Stórfengleg mannvirki að skoða og mikilfenglegt útsýni yfir Seyðisfjörð og bæinn. Hægt er að aka þangað á rútu og á flestum venjulegum bílum yfir sumartímann.  Einstök upplifun fyrir þá sem ekki geta gengið á fjöll, segja má að þetta sé sannkölluð “safari” ferð. Á Bjólfi eru kjöraðstæður fyrir Svifvængi. Það tekur um 15-20 mínútur að aka frá afleggjaranum á Fjarðarheiði upp að snjóflóðavarnargörðum.

Dvergasteinn

Filed under: Afþreying,Gönguleiðir & náttúra — oli @ 11:42 am

Easy accessibility

Meira...

Bláa kirkjan

Filed under: Afþreying,Menning — oli @ 10:21 am

Tónleikaröðin Bláa kirkjan hefur veffangið www.blaakirkjan.is Vinsamlegast líttu þar við til þess að sjá dagskrá og aðrar upplýsingar

Framkvæmdastjóri 2007: Aðalheiður Borgþórsdóttir
Starfsmaður: Björt Sigfinnsdóttir
Sími: 470 2308
Netfang blaakirkjan@blaakirkjan.is

Meira...

Kajakferðir og Hjólreiðaleiga

Filed under: Afþreying — oli @ 9:08 am

Júní, júlí og ágúst.
Upplýsingar í síma 865-3741
Heimasíða www.iceland-tour.com
Einnig upplýsingar í upplýsingamiðstöð ferða– og menningarmála
S. 472-1551 / 861-7789 – E-mail ferdamenning@sfk.is

Meira...

Sjóstöng

Filed under: Afþreying — oli @ 8:55 am

Opið allt árið
Til að bóka ferð hafið samband í;
Sími: 892 7314
tölvupóstur: info@seafishingiceland.com

Meira...