Með því að klífa sjö fjallatinda við Seyðisfjörð, flesta vel yfir 1000 m, gefst fólki kostur á að gerast „Fjallagarpar Seyðisfjarðar“. Fjöllin eru: Sandhólatindur, Bjólfur, Nóntindur, Hádegistindur, Strandartindur, Snjófjall og Bægsli. Gestabækur og stimplar eru á toppi fjallana. Nánari upplýsingar og stimpilkort fást í upplýsingamiðstöðinni í Ferjuhöfninni, Einnig eru upplýsingar á www.seydisfjordur.is
til baka

English
Íslenska